Verkin okkar

Við gerum allskonar hluti, þ.e. í bátum. Trefjaplast er vissulega uppistaðan í verkefnunum en margt fleira hefur komið til. Skipta um vélar, skipta út rafkerfum, skipta út tækjum, skipta um botnstykki, málum báta svo fátt sé talið.

Við smíðum hluti, þá einkum úr trefjaplasti. Flotkassar, blóðgunarkassar, vélarundirstöður, hurðir, hurðakarmar, lúgur svo fátt eitt sé talið. Þá er bátasmíðin sjálf ótalin en báturinn Bragi Óla kom hálfsmíðaður til okkar og hefur útheimt ófá handtök við allt annað en smíði skrokksins.

Við gefum okkur ekki út fyrir vélaviðgerðir en við eigum samstarfsaðila sem sjá um það.