Hvað gerum við?

Trefjaplastvinna er vissulega aðalstarfið hjá okkur en viðfangsefnin eru fleiri.

Raflagnir:

Við lagfærum rafkerfi og leggjum jafnvel heilu rafkerfin í báta. Rafkerfi í bát er að mörgu leyti ólíkt rafkerfi t.d. í húsi eða bíl. Þar munar mest um að jarðtenging í bát er ekki mínus-póll rafkerfisins. Fleira kemur til sem óþarft er að nefna hér en seltan sem fylgir bátum er ekki vinur rafkerfa og því þurfa þau frekar endurnýun en önnur rafkerfi.

Tæki:

Tæki í bát eru margvísleg og krefjast margskonar úrlausna til að virka rétt. Í bátum með tvö rafkerfi þarf að huga sérstaklega að því að samtengja kerfin alls ekki svo dæmi sé tekið.

Vélaskipti:

Að skipta um vél og setja aðra sams konar í staðinn er einföld aðgerð en þegar sett er öflugri vél þarf t.d. að huga að vélarundistöðum og að sjálfsögðu þarf að skrá nýja vél hjá Samgöngustofu ásamt því að fá samþykktar teikningar af nýjum vélarundirstöðum.

Málun báta:

Að mála bát og mála bát er ekki sami hluturinn. Það að þrífa bátinn og rúlla hann með skipalakki er góðra gjalda vert en að slétta flötinn vel og sprautulakka hann er annað. Reynsla af bílamálun kemur sterk inn þegar seinni aðferðin er nefnd en þess má geta að hún er mikið tímafrekari og að sama skapi dýrari, en vissulega fallegri ef vel tekst til.

Báta- og breytingateikningar:

Okkur hefur gengið vel að fá teikningar samþykktar af Samgöngustofu og samstarfið við þá stofnun hefur gengið vel. Við höfum unnið smíðateikningar af bátum og sömuleiðis breytingateikningar.

DNG þjónusta:

Rafeindavirkjunin kemur sterk inn, ekki síst þegar handfærarúllurnar eru annars vegar. Þó DNG rúllurnar endist vel þarf að þjónusta þær og það gerum við.

Fleira:

Jú það má eflaust nefna eitthvað fleira. Ef það varðar báta á verkið eflaust heima hjá okkur.