DNG þjónusta

Bátasmiðjan sér um þjónustu á DNG handfæravindum frá Slippnum á Akureyri.

DNG handfæravindur hafa fyrir löngu sannað sig, vinna vel eins og dæmin sanna og ending þeirra er eitthvað sem fáir framleiðendur státa af.

En þó endingin sé framúrskarandi þarf endrum og sinnum að þjónusta vindurnar og þar komum við til skjalanna.

Nokkur hagnýt ráð fyrir eigendur DNG 6000i handfærarúlla.

Ef komin er móða á skjáinn er ráðlegt að láta opna hana, þurrka, þrífa og skipta um rakapúða.

Skoðið hvort kapallinn sé nokkuð laus þar sem hann kemur inn í rúlluna. Ef svo er þá þarf að losa upp á þéttingunni, koma kaplinum aftur á sinn stað og herða vel. Ég set smá kítti með kaplinum þegar ég þjónusta rúllurnar.

Ráðlegt er að smyrja gorminn fyrir slakaskynjarann af og til. Segullinn í slaka-arminum á það til að gefa sig og þá þarf að skipta honum út. Hreyfið slakaarminn upp og niður með færið alveg slakt, ef einhver tregða er í honum má byrja á að hreinsa hann með vatni eða sjó og smur- hreinsiefni líkt og WD-40 getur virkað vel. Ef rúllan flækir þegar hún er búin að slaka til botns (semsagt stoppar ekki strax) er það merki um að slakaarmurinn fer ekki nógu hratt upp eða ekki rétt stilltur. Stilling á slaka-arminum er á síðu 5, munið að stilla “Upp” og “Niður” stöðurnar báðar.

Mjög áríðandi er að hafa rúlluna í gangi þegar færið er dregið út af henni, t.d. þegar skipt er um færi. Haldið Start/Stop hnappnum niðri í nokkrar sekúndur, þá losnar bremsan. Að öðrum kosti framleiðir vindan rafmagn meðan slakað er, þessi frábæri eiginleiki á sér þó skuggahlið, hún reynir að framleiða rafmagn þó dautt sé á henni og einmitt þá getur hún ekki komið rafmagninu frá sér og hætt er við að móðurborðið skemmist, dæmi er um slíkt.

DNG gefur út leiðbeiningar með 6000i vindunum, ég (og eflaust flestir) eru með þetta útprentað um borð. https://www.dng.is/_files/ugd/20dfdd_cf63d7bbcea740aeac18f8d6daaa30a2.pdf

Einnig er ýtarlegri bæklingur fyrir rúllurnar hér. https://www.dng.is/_files/ugd/20dfdd_7e21a66225304d59bad94e2103b6ff23.pdf