Category: Verkin okkar
-

Blikanes ÍS-51
Starfsemi bátasmiðjunnar hefur oftast snúið um okkar eigin báta en þannig verður það ekki endalaust og Blikanes er eitt dæmið um það. Blikanesið fékk smá yfirhalningu, við skitpum um botnstykki, dýptarmæli, plotter, bættum annarri talstöð við, smíðuðum loftnetsfestingu, skiptum um hurð og máluðum bátinn.
-

Hafdís ÍS-35
Hafdís er annar Sómabáturinn sem við eignuðumst, reyndar sá fyrsti en við tókum þennan ekki í gagnið til að byrja með þar sem hann var stórskemmdur, vélarlaus, með ónýtt rafkerfi og svona frekar allslaus. Síðustokkarnir voru hálfbrotnir af, við hentum þeim. Bátinn vantaði vél og við settum Cummins 8,3L 300 hestafla vél í hann. Svo…
-

Kappróðrarbátarnir Geysir og Gammur
Sjómannadagurinn er lítils virði ef engir eru kappróðrarbátarnir. Gammur og Geysir skemmdust í vonskuveðri, brotnuðu talsvert og mál manna er að sjómannadagurinn hafi ekki verið haldinn á Súganda því engir voru kappróðrarbátarnir. Við ákváðum að láta gott af okkur leiða og tókum að okkur að gera við bátana rétt áður en strandveiðivertíðin hófst. Ekki tókst…
-

Bragi Óla ÍS-25
Þessi bátur er annarskonar verkefni en önnur verkefni sem hafa ratað til okkar. Hér er um nýsmíði að ræða, tilbúinn skrokkur sem búið var að dekka og bara allt annað eftir. Báturinn er breskur skemmtibátur, Sea Lord 44. Hann var fluttur til landsins fyrir mörgum árum, tekin af honum mót, reyndar tvö mót og upp…
-

Hugrún Fjóla DA-4
Hugrún Fjóla er sami bátur og Gunna Valda, við gerðum ekki margt í þessum bát, máluðum hann fyrir nýjan eiganda og settum botnstykki fyrir Furuno dýptarmæli. Stundum eru verkin lítil en nýmálaður bátur er alltaf augnayndi.
-

Gunna Valda ÍS-75
Gunna Valda er sennilega minnsta verkefnið okkar. Við keyptum bátinn með ónýta vél, skiptum um vél á Akureyri og sigldum honum heim til Súganda. Við gerðum bátinn út eitt sumar á strandveiðar og gekk vel. Bátinn seldum við næsta vetur og þá fékk hann nafnið Hugrún Fjóla DA-4. Bátnum réri ég svo eitt sumar á…
-

Vonin ÍS-94
Vonin hét Ásmundur og sökk í höfninni Hofsósi. Báturinn var hífður á þurrt og þannig var hann þegar við keyptum hann snemma árs 2020. Engar skemmdir voru á skrokk en allur búnaður í bátnum var ónýtur, vél, rafkerfi, tæki o.fl. Meðan við áttum bátinn gerðum við nokkrar breytingar á honum. Fyrst tókum við kassann af…