Category: Verkin okkar
-

Blóðgunarkassar
Þegar lítið er að gera í bátasmiðjunni er alveg upplagt að búa til blóðgunarkassa. Þessir eru í stærra lagi en henta sérlega vel á síðuna á Sóma 900 bát, taka ábyggilega 100kg hvor. Nú er bara að fara með þá um borð, skera þá í rétta hæð og skrúfa festingarnar á þá. Vantar þig blóðgunarkassa,…
-

Flotkassi
Bliki ÍS er færeyingur og líkt og aðrir eins bátar á hann það til að grafa sig svolítið niður að aftan á siglingu. Trefjar framleiða flotkassa á Skel 26 bátana og passar sá flotkassi þokkalega á færeying. Þar sem kassinn er ekki ætlaður á þennan skrokk þurfti að ákveða botnlínuna og þar var kassinn engin…
-

Bára ÍS, brotið stefni
Það er slæmt að skemma bátinn sinn og sínu vera væri að missa fjölmarga daga af strandveiðum í þokkabót. Hvítasunnuhelginni var fórnað og báturinn klár á veiðar annan í hvítasunnu. Á yfirborði sjávar flýtur ýmislegt sem getur skemmt báta. Þetta fékk skipstjórinn á Báru ÍS að reyna í sumar. Eitt vandamálið við skemmdina var að…
-

Jónína Brynja ÍS
Jónína Brynja var brotin á svolítið sérstökum stað, efst á botninum framarlega í vélarrúminu. Engin aðkoma var að brotinu innan frá svo viðgerðin var öll gerð utan frá. Sprungan sjálf var ekki alvarleg að sjá en sakir þess að ekki var hægt að komast að henni innan frá þurfti viðgerðin að vera bæði þykk og…
-

Að búa til trefjaplast-plötu
Gamall vinur hafði samband á dögunum og spurði hvort hægt væri að búa til slétta plötu úr trefjaplasti. Svarið er einfalt, já, og það er lítið mál. Ég leiddi Friðrik í fáum orðum hvernig þetta væri gert en þar sem ég var einmitt að fara að búa til sambærilegar plötur í loftaklæðningu tók ég nokkrar…
-

Laust línuspil
Sum verkefni eru ekki mikilfengleg en geta skipt miklu máli. Eitt slíkt var að laga brot í lunningu undir línuspili á Hrefnu ÍS frá Súganda. Eigendur voru búnir að fjarlægja allt sem fyrir var og eftirleikurinn einfaldur en áhrifaríkur. Plastað var sitthvoru megin við krossvið sem hafði verið settur í lunninguna þegar báturinn var smíðaður…
-

Bátasmiðjan flytur á Flateyri
Á dögunum festum við kaup á húsnæði fyrir bátasmiðjuna. Húsnæðið er að Hafnarbakka 5 á Flateyri. Þetta er mun stærra húsnæði en það sem við hugðumst byggja á Suðureyri en húsnæðið þarfnast stærri hurða og talsverðs viðhalds. Húsnæðið er mikið stærra en núverandi húsnæði og það býður upp á ný tækifæri. Meira pláss skapar ný…
-

Bobby bátarnir
Margir þekkja stangveiðibátana á Suðureyri og Flateyri, Bobby bátana. Bátarnir voru smíðaðir af Bátasmiðjunni Seiglu á sínum tíma en hafa á síðustu árum fengið minna útlitslegt viðhald. Metnaður nýrra eigenda stendur til að bæta snarlega úr þessu og gengið hefur verið frá samningi við Bátasmiðjuna Freyju um útlitslegt viðhald á öllum bátunum. Bátarnir verða teknir…
-

Rúnar AK-77
Eins og margir bátar mátti Rúnar við smá “hressingu”. Vélin hafði orðið fyrir vatnstjóni, rafkerfið var lélegt að hluta til og útlitið var bara eins og við var að búast. Í ljós kom að vélin þurfti mikla upptekt og fengin var skiptivél, ekki mikið notuð og virðist bara virka vel. Rafkerfið var endurnýjað að miklu…
-

Skjáir á DNG 6000i
Á tímabili var erfitt að fá skjái á 6000i rúllurnar en það er liðin tíð. Við höfum skipt um skjái á nokkrum misgömlum 6000i rúllum með góðum árangri. Okkur þykir rétt að benda á að móða innan á skjá rúllunar er merki um að raki hafi komist í hana, sá raki getur orsakað bilanir ef…