Bátasmiðjan Freyja ehf

Bátasmiðjan Freyja ef staðsett á Suðureyri við Súgandafjörð. Eigendur eru Þórður Bragason og Malín Brand. Þórður er eini starfsmaður fyrirtækisins. Auk bátasmíða réttindanna er hann menntaður rafeindavirki, tölvunarfræðingur o.fl. en það er sjór í blóðinu og bátar eru mikið meira heillandi en transistorar og tölvuforrit.

Undanfarin ár höfum við einna helst unnið í okkar eigin bátum en önnur verkefni hafa slæðst með.

Verkefnin hafa helst verið við trefjaplast, ýmsar viðgerðir en þess utan höfum við skipt um vélar, gert upp vélar, sett þær niður og stillt af, tengt og reyndar lagt heilu rafkerfin ásamt því að setja botnstykki í báta og koma flestum tækjum fyrir. Einnig höfum við forritað AIS tæki en það ætti ekki að vera stórmál fyrir tölvunarfræðinginn. Að auki þjónustum við DNG handfærarúllur fyrir sjómenn á svæðinu.

Við erum með einn bát í smíðum. Teikningar fyrir þann bát höfum við unnið sjálf og fengið samþykktar enda hefur samstarfið við Samgöngustofu gengið mjög vel. Einnig höfum við unnið við teikningar fyrir breytingar á öðrum bátum.

Árið okkar er allajafna þannig að sumarið fer í strandveiðar en aðrir árstímar eru helgaðir bátasmiðjunni. Verkefnin hafa verið næg og virðast ætla að vera það áfram.

Bátasmiðjan er nú í ca 100 fermetra húsnæði við höfnina á Súganda en stærra húsnæði er til skoðunar.

Nafnið, Bátasmiðjan Freyja, kemur bara til vegna sögunnar. Á fyrri hluta síðustu aldar voru bæði bátar og fiskivnnsla með Freyju nafninu, þetta nafn tengist fjölskyldu Þórðar og okkur þótti vel við hæfi að endurvekja nafnið sem virtist horfið af sjónarsviðinu.