Bátasmiðjan Freyja ehf. hóf starfsemi á Suðureyri við Súgandafjörð fyrir nokkrum árum. Eigendur eru Þórður Bragason og Malín Brand. Þórður er eini starfsmaður fyrirtækisins. Auk réttinda til bátasmíða er hann menntaður rafeindavirki, tölvunarfræðingur o.fl. en það er sjór í blóðinu og bátar eru mikið meira heillandi en transistorar og tölvuforrit.
Undanfarin ár höfum við einna helst unnið í okkar eigin bátum en önnur verkefni hafa slæðst með.
Verkefnin hafa helst verið við trefjaplast, ýmsar viðgerðir og þess utan höfum við skipt um vélar, gert upp vélar, sett þær niður og stillt af, tengt og reyndar lagt heilu rafkerfin ásamt því að setja botnstykki í báta og koma flestum tækjum fyrir. Einnig höfum við forritað AIS tæki en það ætti ekki að vera stórmál fyrir tölvunarfræðinginn. Að auki þjónustum við DNG handfærarúllur fyrir sjómenn á svæðinu.
Við erum með einn bát í smíðum. Teikningar fyrir þann bát höfum við unnið sjálf og fengið samþykktar enda hefur samstarfið við Samgöngustofu gengið mjög vel. Einnig höfum við unnið teikningar fyrir aðra.
Hjá okkur er árið þannig að sumarið fer í strandveiðar en aðrir árstímar eru helgaðir bátasmiðjunni. Verkefnin hafa verið næg og virðast ætla að vera það áfram.
Bátasmiðjan er nú í litlu húsnæði við höfnina á Suðureyri en við flytjum starfsemina á Hafnarbakka 5 á Flateyri með haustinu.
Nafnið, Bátasmiðjan Freyja, kemur bara til vegna sögunnar. Á fyrri hluta síðustu aldar voru bæði bátar og fiskvinnsla með Freyju-nafninu, þetta nafn tengist fjölskyldu Þórðar og okkur þótti vel við hæfi að endurvekja nafnið sem virtist horfið af sjónarsviðinu.
Bátasmiðjan Freyja ehf
Hjallavegur 11
430 Suðureyri
S: 896-1442
thbraga@simnet.is
600818-1040
0133-26-15523
