DNG 6000i, skipt um færi

Posted by

·

Nú er kominn sá tími að margir sjómenn fara að huga að bátum sínum enda langt strandveiðisumar í vændum. Eitt verkefni margra er að skipta um færi og rétt að vara við að það skiptir máli hvernig það er gert.

Undanfarið hef ég fengið nokkrar 6000i rúllur í viðgerð sem voru með ónýt móðurborð og jafnvel skjái og lyklaborð líka.

Ástæðan er hugsanlega sú að færið hefur verið dregið út af rúllunni án þess að setja hana í “slökunar ham”. Það er gert með því að hafa rúlluna í gangi og halda slaka/hífa-takkanum niðri í 5 sekúndur. Þannig reynir rúllan ekki að hlaða inn á geymana, verður alveg slök.

Haldið hífa / slaka hnappnum niðri í 5 sekúndur til að getað dregið færið út af rúllunni.

Ef rúllan er ekki í gangi reynir hún samt að hlaða en engin kerfi eru í gangi til að stilla spennuna og koma henni frá rúllunni. Ef dregið er hratt út af rúllunni getur myndast mjög há spenna sem á endanum getur hleypt neista um móðurborðið og eyðilegt það. Það kostar sitt og fleiri íhlutir eru í hættu.

Ég minni líka á að skoða hvort kapallinn sé vel fastur og þéttur þar sem hann kemur inn í rúlluna, nokkur dæmi um rakaskemmdir má rekja til kapals sem hefur dregist lítið eitt út úr rúllunni og þannig opnað leið fyrir raka inn í rúlluna. Ef móða er komin á skjáinn er rétt að láta opna rúlluna, þurrka hana og hreinsa, annað er ávísun á bilanir.

Ef þú þarft að láta laga eða yfirfara 6000i rúlluna þína hafðu þá samband. Ég er með verkstæði á Flateyri og samgöngur bjóða upp á að fá rúllur sendar hvaðan sem er af landinu.

kv,
Þórður Bragason
S: 896-1442
http://www.batasmidjan.is