Ein helsta ástæða þess að móða kemur á skjáinn á handfæravindunum er sú að straumkapallinn hefur togast út úr rúlluni og skilið eftir greiða leið fyrir raka.

Rakinn sem kemst inn í rúlluna eyðileggur skjáinn, móðurborðið og yfirhöfuð allt sem fyrir er.


Mikilvægt er að fyrirbyggja að strekkst geti á kaplinum, t.d. með því að festa hann við eyra sem á fætinum sem rúllan hvílir á. Einnig þarf að tryggja að nægur slaki sé til staðar svo ekki strekkist á kaplinum þó rúlluni sé snúið fram eða aftur.
Það getur verið smá vesen að koma kaplinum aftur í ef hann hefur losnað. Losa þarf festiróna, draga gúmmíþétti hringinn niður, koma kaplinum upp aftur og gúmmíhringnum á eftir. Svo er festiróin bara skrúfuð á aftur, herða vel en alls ekki of mikið.
Af þeim rúllum sem við höfum fengist við undanfarið eru mjög margar með móðu og undantekningalaust hefur kapallinn verið laus.
Ef móða er komin á skjá hjá þér ættir þú að senda okkur rúlluna til að hreinsa hana og þurrka, og ganga frá kaplinum að sjálfsögðu.
