Blóðgunarkassar

Posted by

·

Þegar lítið er að gera í bátasmiðjunni er alveg upplagt að búa til blóðgunarkassa. Þessir eru í stærra lagi en henta sérlega vel á síðuna á Sóma 900 bát, taka ábyggilega 100kg hvor. Nú er bara að fara með þá um borð, skera þá í rétta hæð og skrúfa festingarnar á þá.

Vantar þig blóðgunarkassa, endilega hafðu samband við Þórð í síma 896-1442. Verð fyrir hvern kassa sýnist mér verða 55 þúsund fyrir utan vsk.