Bliki ÍS er færeyingur og líkt og aðrir eins bátar á hann það til að grafa sig svolítið niður að aftan á siglingu. Trefjar framleiða flotkassa á Skel 26 bátana og passar sá flotkassi þokkalega á færeying.

Þar sem kassinn er ekki ætlaður á þennan skrokk þurfti að ákveða botnlínuna og þar var kassinn engin hjálp. Smiðað var borð undir bátinn þegar búið var að stilla hann af. Þannig var auðvelt að renna kassanum frá til að skera af honum og svo slípa bátinn þar sem kassinn var plastaður á hann.



Eins og áður sagði er kassinn ætlaður á Skel 26 sem er pínulítið öðruvísi í laginu. Þess vegna þurfti að skera hann vandlega að skrokknum til að fá hann til að passa. Vandinn við þá aðgerð er að láta kassann liggja jafnt beggja vegna.

Svona lítur þetta út og vonandi dugar þetta til að aftra bátnum frá því að grafa afturendan niður og setja stefnið upp í loft á siglingu.