Jónína Brynja var brotin á svolítið sérstökum stað, efst á botninum framarlega í vélarrúminu. Engin aðkoma var að brotinu innan frá svo viðgerðin var öll gerð utan frá.

Sprungan sjálf var ekki alvarleg að sjá en sakir þess að ekki var hægt að komast að henni innan frá þurfti viðgerðin að vera bæði þykk og ná langt út fyrir hana.

Ekki auðnaðist mér að taka mynd af viðgerðinni fullplastaðri og sem verra er ég tók enga mynd af brettavirkinu sem ég hlóð kringum viðgerðarsvæðið til að halda hitanum af blásaranum á viðgerðinni. Ég reyni að gera betur næst.
