Bára ÍS, brotið stefni

Posted by

·

Það er slæmt að skemma bátinn sinn og sínu vera væri að missa fjölmarga daga af strandveiðum í þokkabót. Hvítasunnuhelginni var fórnað og báturinn klár á veiðar annan í hvítasunnu.

Á yfirborði sjávar flýtur ýmislegt sem getur skemmt báta. Þetta fékk skipstjórinn á Báru ÍS að reyna í sumar.

Hluti stefnisins var mölbrotinn

Eitt vandamálið við skemmdina var að brotið var misstórt. Að ofanverðu náði það meira í stjór en meira í bak að neðan. Skiljanlega er það áríðandi að sá hluti skrokksins sem klýfur sjóinn sé eins beggja megin og stefnið er sko engin undantekning.

Stefnið er sterkasti hluti bátsins og því þurfti að plasta fjölmargar umferðir. En allt hafðist þetta og stefnið nokkuð jafnt beggja vegna.