Sum verkefni eru ekki mikilfengleg en geta skipt miklu máli. Eitt slíkt var að laga brot í lunningu undir línuspili á Hrefnu ÍS frá Súganda.




Eigendur voru búnir að fjarlægja allt sem fyrir var og eftirleikurinn einfaldur en áhrifaríkur. Plastað var sitthvoru megin við krossvið sem hafði verið settur í lunninguna þegar báturinn var smíðaður og málað með topcoat í restina.
Eigendurnir, sem er annt um bátinn sinn, vildu líka laga smá brot framan á stefni bátsins, líklega eftir árekstur við rekald eða álíka. það var plastað og málað með topcoat og svo með botnmálningu.
Báðar þessar skemmdir hefðu eflaust orðið dýrar ef þær hefðu fengið að grassera í lengri tíma. En þegar brugðist er við í tíma verða hlutirnir oftast einfaldari.
