Gamall vinur hafði samband á dögunum og spurði hvort hægt væri að búa til slétta plötu úr trefjaplasti. Svarið er einfalt, já, og það er lítið mál. Ég leiddi Friðrik í fáum orðum hvernig þetta væri gert en þar sem ég var einmitt að fara að búa til sambærilegar plötur í loftaklæðningu tók ég nokkrar myndir og skal reyna að lýsa aðgerðinni.
Fyrst. Notið slétta plötu, hér er notaður brúnn, vatnsvarinn krossviður en flest sem slétt er kemur til greina.
Þrífið plötuna vel og bónið, ég nota fljótandi bílabón frá Sonax, einfalt í notkun og virkar bara vel.
Þar sem ég ætla að láta motturnar ná yfir alla plötuna set ég tape á brúnirnar. Ég læt það ná bara nokkra millimetra inn á plötuna og út í loftið, annars er hætt við að topcoat o.fl leki niður kanntana og erfitt verði að losa afurðina af plötunni.
Þurrkið allt ryk af ef eitthvað er því allt sem liggur á plötunni verður sýnilegt á afurðinni.
Berið topcoat eða gelcoat á plötuna, látið harðna en ekki um of, ég læt ekki meira en 6 klst líða þar til ég byrja að setja mottur og resin. Þannig næst “efnisleg binding” og óþarfi að pússa og/eða grunna fyrir plöstun. Ekki byrja of snemma, þá er hætt við að motturnar nái í gegn og svokallað “Crocodile skin” myndist á yfirborðinu.
Áður en motturnar eru lagðar á þarf að væta yfirborðið með resin, þetta hljómar e.t.v. ekki svo mikilvægt en er það í raun.
Ég setti bara 2 umferðir af 600 gr/m2 strand mottum. Rúllaði yfir hvora umferð með loftrúllu enda mikilvægt að ná öllu lofti úr steypunni.
Morguninn eftir var nýja platan klár og hægt að vinna hana. Hún er um 3-4mm þykk, létt og auðvelt að vinna hana.
Í lokin er rétt að minnast á loftræstingu, hita og raka. Trefjaplast er eitrað og krefst góðrar loftræstingar. Notið hanska og þrífið verkfæri með Asitón. Kjörhitastig við trefjaplastvinnu er um 18°C. Öll bleyta er til þess eins að eyðileggja plöstun svo varist allan raka. Góður hitablásari kemur sér alltaf vel.
Öll trefjaefni sem til þarf fást t.d. hjá Infuse í Vatnagörðum, Trefjar í Hafnafirði selja líka svona efni og eflaust fleiri. Notið ekki meira af herði en ætlast er til, það bara skemmir efnin og eyðileggur hvítu efnin sem verða gul eða gulleit.




Vonandi kemur þetta einhverjum að gagni.