Bobby bátarnir

Posted by

·

Margir þekkja stangveiðibátana á Suðureyri og Flateyri, Bobby bátana. Bátarnir voru smíðaðir af Bátasmiðjunni Seiglu á sínum tíma en hafa á síðustu árum fengið minna útlitslegt viðhald. Metnaður nýrra eigenda stendur til að bæta snarlega úr þessu og gengið hefur verið frá samningi við Bátasmiðjuna Freyju um útlitslegt viðhald á öllum bátunum.

Bátarnir verða teknir inn á verkstæði næsta vetur þar sem þeir verða málaðir og gert við skemmdir ef svo ber undir. Ein slík skemmd var einmitt löguð á dögunum, stálstykki rann af lyftara og skemmdi byrðing eins bátsins. Auðveld viðgerð en þýðingarmikil þar sem skemmdin var á slæmum stað.