Bátasmiðjan flytur á Flateyri

Posted by

·

Á dögunum festum við kaup á húsnæði fyrir bátasmiðjuna. Húsnæðið er að Hafnarbakka 5 á Flateyri. Þetta er mun stærra húsnæði en það sem við hugðumst byggja á Suðureyri en húsnæðið þarfnast stærri hurða og talsverðs viðhalds. Húsnæðið er mikið stærra en núverandi húsnæði og það býður upp á ný tækifæri.

Meira pláss skapar ný tækifæri: Bátahótel

Vissulega verðum við með okkar starfsemi í húsinu en hugmyndir eru uppi um að menn geti komið með báta sína, unnið í þeim sjálfir eða fengið aðra til þess, jafnvel okkur. Eins konar bátahótel. Auðvitað gæti húsnæðið líka hentað fyrir allt annað eins og rútur, sendibíla og önnur stór farartæki svo dæmi séu nefnd.

Framkvæmdir við húsið munu hefjast strax við afhendingu í sumar og munu fyrstu bátarnir koma inn í haust.

Kveðja,
Bátasmiðjan Freyja ehf.
Þórður Bragason
Malín Brand