Rúnar AK-77

Posted by

·

Eins og margir bátar mátti Rúnar við smá “hressingu”. Vélin hafði orðið fyrir vatnstjóni, rafkerfið var lélegt að hluta til og útlitið var bara eins og við var að búast.

Í ljós kom að vélin þurfti mikla upptekt og fengin var skiptivél, ekki mikið notuð og virðist bara virka vel.

Rafkerfið var endurnýjað að miklu leiti, skipt um töflu, margar lagnir, höfuðrofa o.fl.

Mastrið hafði jagast í sundur og það var soðið saman með smá styrkingu til að hindra að það gerist aftur.