Á tímabili var erfitt að fá skjái á 6000i rúllurnar en það er liðin tíð. Við höfum skipt um skjái á nokkrum misgömlum 6000i rúllum með góðum árangri. Okkur þykir rétt að benda á að móða innan á skjá rúllunar er merki um að raki hafi komist í hana, sá raki getur orsakað bilanir ef ekkert er að gert. Oftast er um mjög einfalda aðgerð að ræða, bara opna rúlluna, þurrka og skipta um rakapoka, en einnig þarf að skoða hvort einhver óhreinindi hafi safnast á aðra staði. Við sama tækifæri skoðum við innri stillingar rúllunar, ef eitthvað breytist getur t.d. fisknæmi breyst.
