Hafdís er annar Sómabáturinn sem við eignuðumst, reyndar sá fyrsti en við tókum þennan ekki í gagnið til að byrja með þar sem hann var stórskemmdur, vélarlaus, með ónýtt rafkerfi og svona frekar allslaus.









Síðustokkarnir voru hálfbrotnir af, við hentum þeim. Bátinn vantaði vél og við settum Cummins 8,3L 300 hestafla vél í hann. Svo var bara að laga skrokkinn, þá var þetta allt í áttina.







Rafkerfið var frekar bágborið og við skiptum því út, löguðum púltið í stýrishúsinu og máluðum það. Það er fátt betra en nýtt rafkerfi.





Vélina keyptum við notaða, keyrða rúma 2 þúsund tíma. Cummins 8,3L 6cta svona til að vera nákvæmur. Hún leit nú bara vel út en það sakaði ekki að mála hana fyrst. Ekki versnaði vélarrúmið við að fá málningu yfir sig líka.








Viðgerðin á skrokk bátsins var frekar stórt verkefni. Nokkur göt voru á bátnum og þeim þurfti að loka. Báturinn var með síðustokka sem virtust illa smíðaðir og þar að auki hálfbrotnir af. Við tókum þá bara af enda draga síðustokkar úr gangi Sóma báta. Eitt enn gerðum við sem ekki sést á myndum, við breyttum öxulhallanum. þá staðreynd að báturinn gengur ca 26 mílur má að miklu leiti rekja til þeirrar breytingar. Bátinn máluðum við hátt og lágt, lagfærðum allt sem fyrir augu bar og segja má að báturinn hafi verið “tekinn í nefið”.
