Vonin hét Ásmundur og sökk í höfninni Hofsósi. Báturinn var hífður á þurrt og þannig var hann þegar við keyptum hann snemma árs 2020. Engar skemmdir voru á skrokk en allur búnaður í bátnum var ónýtur, vél, rafkerfi, tæki o.fl.









Meðan við áttum bátinn gerðum við nokkrar breytingar á honum. Fyrst tókum við kassann af honum, eins og myndirnar sýna er botn hans ekki eins og botn bátsins. Svo settum við aðeins styttri kassa aftan á hann og létum hann fylgja botnlínunni. Svo skárum við perustefnið af bátnum, það var mikil breyting. Aldrei tókst að fá meiri gang í bátinn, hann gekk bara sínar 8 til 9 mílur og því varð ekki breytt. En báturinn steinhætti að taka sjó yfir sig og allar hreyfingar urðu þægilegri. Perustefnið var aldrei að gera neitt gott fyrir þennan bát.