Kappróðrarbátarnir Geysir og Gammur

Posted by

·

Sjómannadagurinn er lítils virði ef engir eru kappróðrarbátarnir. Gammur og Geysir skemmdust í vonskuveðri, brotnuðu talsvert og mál manna er að sjómannadagurinn hafi ekki verið haldinn á Súganda því engir voru kappróðrarbátarnir.

Við ákváðum að láta gott af okkur leiða og tókum að okkur að gera við bátana rétt áður en strandveiðivertíðin hófst. Ekki tókst að mála bátana en að öðru leiti eru þeir tilbúnir í slaginn. Verst þótti okkur að ekki viðraði til kappróðra en auðvitað kemur annar sjómannadagur að ári.