Bragi Óla ÍS-25

Posted by

·

Þessi bátur er annarskonar verkefni en önnur verkefni sem hafa ratað til okkar. Hér er um nýsmíði að ræða, tilbúinn skrokkur sem búið var að dekka og bara allt annað eftir.

Báturinn er breskur skemmtibátur, Sea Lord 44. Hann var fluttur til landsins fyrir mörgum árum, tekin af honum mót, reyndar tvö mót og upp úr þeim voru smíðaðir Spútnik bátarnir og Sómi 1200.

Þegar við hjónin keyptum bátinn var Volvo Penta TAMD-75 vél komin í hann en við seldum þá vél og settum 700 hestafla Yanmar vél í staðinn, það vonandi dugar.

Báturinn stóð hálfsmíðaður í mörg ár en yfirbyggingin skemmdist þegar eitthvað brann í Hanfnarfirði um árið. Einar heitinn Steinsson keypti bátinn og hófst handa við að breyta honum í fiskibát, sér til aðstoðar hafði hann Marko sem margir eigendur trefjaplast báta þekktu. Þeir eru báðir látnir en eftir stóð báturinn hálfsmíðaður. Áður höfðu þeir smíðað bátinn Brana BA og þess ber ég vitni að allt sem þeir gerðu var upp á tíu.

Síðan við keyptum bátinn hefur margt vatn runnið til sjávar en vinnan við bátinn gekk hægt meðan hann var á bryggjukanntinum í Hafnarfirði, við reyndar náðum að smíða stýrishús á hann og setja það á en aðstæður voru ekki hliðhollar.

Eins og áður kom fram settum við 700 hestafla Yanmar vél í bátinn. Sú vél kom reyndar ekki tilbúin til niðursetningar. Við opnuðum vélina, yfirfórum og skiptum um það sem þurfti, settum hana svo saman og í bátinn fór hún.